Ég var að koma úr geggjuðu fríi eins og
flestir ættu að vita. Ammma, afi, tóta og pétur voru með
okkur sem gerðu fríið bara skemmtilegra.
En hér koma nokkrar sniðugar minningar um
ferðina:
·
Við leigðum svaka flott hús á fjóni sem var agjört
draumahús. Fyrir utan allar kóngulærnar auðvitað! En þetta fylgir
því víst að vera í útlöndum!!! Ég komst að því að amma er
snillingur í badminton og við vorum heilu kvöldin að æfa okkur. Það
var strönd þarna sem var ÆÐI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
·
Það voru sko krabbaveiðar í lagi á sröndinni á
Fjóni! Afi var búinn að búa til snilldar krabba-veiði-græjur. Fyrst
fann hann eitthvað band í bílnum, tók helling af fínu hráskinkunni
( mamma var ekki nógu hrifin af að sóa þessari fínu skinku í
eitthverja krabba! ) og festi skinkuna við bandið með klemmu. Það
var lítil smábátahöfn á ströndinni sem krabbarnir földu sig undir.
Það voru engir bátar þarna svo þetta var geggjað! Mamma hafði verið
búin að kaupa veiðiháf svo þetta gekk bara mjög vel. Við veiddum 2
mega-fullar fötur af fúlum kröbbum og ég og pabbi héldum á
sitthvorum krabbanum!
·
Við vorum rosa-mega-súper-dúper mikið á þessari
strönd á Fjóni. Ég náði einu sinni að hrinda mömmu út af
bryggjunni, (auðvitað í sundfötum) en mamma svaraði tífalt til
baka! Vatnið var svo grunnt. Við fjölskildan hoppuðum þá saman út í
sjóinn og löbbuðum (sko í sjónum) út á stóra steina, settumst á þá
og fengum okkur moreller = kirsuber. Ég kann nú eitthvað í
dönsku!
·
Við fórum í LEGO-land og við skiptum liði: amma,
afi, mamma og Halldóra voru saman og ég og pabbi saman. Við fórum í
alla rússíbanana og í endalaust maður! Við mættum eldsnemma á
mánudagsmorgni en samt biðum við ca. 45 mín. í hvert tæki! Þetta
var snilldar garður og ég mæli með honum!
·
Við vorum að versla í matinn og mamma var búin að
setja fullt í körfu. Allt í einu sá hún eitthvað
ógeðslegt í körfunni
og setti upp hneikslunarsvip og spurði “pabba” sem skildi
ekki hvað væri í gangi hvað þetta ætti eiginlega að þíða!!!
Þá kom í ljós að þetta var sko enginn pabbi heldur bara
móðgaður dani! Ég skil reindar að hann hafi verið móðgaður!
Fyrst var mamma að henda eitthverju drasli í körfuna hjá
honum og gerði svo grín af matnum hans!!!!!!!
·
Ég, Halldóra, pabbi og afi fórum í dýragarðinn í
Óðinsvéum sem var geggjaður!!! Ég er búin að komast að því að
mörgæsir eru snilld!!!! Það var líka þarna sem Halldóra varð
erkióvinur geitunganna!
·
Við ætluðum í Astrid Lindgren garðinn með Tótu, en
því miður var ekkert hús laust. Allir voru í sorg þegar pabbi kom
hlaupandi niður stigann. Jibbí, ég fékk hús með klósetti og öllu!
Með klósetti og öllu???
·
En því miður var þetta hús í Vimmerby hryllilega
scary, húsið var eldgamalt og allt inní því líka.Út um allt læstar
dyr, uglur og íkorni taka á móti manni og þrumur og eldingar alla
nóttina. Sem sagt enginn svefnfriður! ( fyrst þegar við sáum það
vorum við að spá í að sofa í bílnum. )
·
En í Astrid Lindgren garðinum var
æðislegt!!! Við vorum í sól og blíðu næstum allan tíman. Við
sáum Kalla á þakiu, Línu langsokkur, Maditt og Betu, fórum í
brekkusöng með Frú Prússólín og gerðum margt margt fleira!!! Þetta
er skemmtilegasti garður í heimi!!!
·
Hún Halldóra Elín týndist í búð og allt varð
kol-crazy, allir farnir á fullt að leita, pabbi og Pétur hlaupnir
út, ég og Tóta alveg ruglaðar og mamma farin á taugum!!! En eftir
ca. tíu mínútur fanst hún samt inni í búðinni, ósýnileg á bak við
fataslá! Þá heyrðist þetta,
En
ég var bara í feluleikvið sjálvan mig!
·
SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN okkar
familyuar og Tótu og Péturs var mjög eftirminnileg! Eftir
mikla leit vorum við loksins sest á eitthvern Pasta-stað og vorum að skoða
matseðilinn. Þá kom í ljós að eingum langaði sérstaklega í pasta.
Þá laumuðum við okkur í burtu frá borðinu.Og svona gekk þetta
áfram! Við fengum borð og stungum af, og aftur og aftur og aftur.
Halldóra alveg að sofna, pabbi og Pétur orðnir brjál og ég að pissa
á mig! Loksins enduðum við á eitthverjum hamborgarastað og
stemmingin eyðilögð!
ÞETTA VAR SKO ÆÐISLEGT
FRÍ !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!